Erla Jóhannsdóttir ráðin leikskólastjóri

Frá hægri: Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri, Nichole Leigh Mosty fráfarandi leikskólastjóri og Er…
Frá hægri: Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri, Nichole Leigh Mosty fráfarandi leikskólastjóri og Erla Jóhannsdóttir nýráðin leikskólastjóri.

Erla Jóhannsdóttir hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra frá og með 1. ágúst nk.

Erla lauk B.ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands og hefur lagt stund á nám í sérkennslufræði og skóla margbreytileikans.

Erla hefur margra ára reynslu af störfum á leikskóla, m.a. sem deildarstjóri, sérkennslustjóri, aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri í afleysingum við leikskólann Álfaborg. Erla hefur einnig fjölbreytta reynslu af félagsstörfum.

Erla er boðin velkomin til starfa hjá sveitarfélaginu og óskað velfarnaðar í sínum störfum.

Nichole Leigh Mosty hefur látið af störfum sem leikskólastjóri frá og með síðustu mánaðarmótum. Nichole eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu leikskólans og fyrir gott samstarf á starfstímanum. Henni er óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem nú taka við.

 

Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri