Góð afkoma Mýrdalshrepps árið 2023

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti ársreikning 2023 við síðari umræðu á 665. fundi

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.387 millj. kr. í A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.320 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,52% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í Aflokki var 0,33% en lögbundið hámark þess er 0,625%, í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark þess er það sama.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 261 millj. kr. en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 304 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2022 nam 1.709 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta nam 1.916 millj. kr.

Veltufjárhlutfall nam 26,2% og skuldahlutfall var 51%. Sveitarfélagið er því í góðri stöðu til áframhaldandi fjárfestingar í innviðum og eflingar á þjónustu við íbúa.


Sveitarstjórn þakkar sveitarstjóra og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir sinn þátt í góðum rekstri sveitarfélagsins.

Ársreikninga sveitarfélagsins má nálgast í eftirfarandi hlekk: Ársreikningar