Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulagsfulltrúi

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að nýju deiliskipulagi Hestamannasvæðis í Vík í Mýrdal.

Hestamannasvæði - Deiliskipulagstillaga

Deiliskipulagstillagan nær til nýs deiliskipulags fyrir hestamannasvæði í Vík við gildistöku þess fellur fyrirliggjandi skipulag Hestamannasvæði í Vík úr gildi. Til þess að þrengja ekki að uppbyggingarmöguleikum í þéttbýlinu er svæðið fært til austurs. Innan skipulagssvæðisins er m.a. gert ráð fyrir hesthúsabyggð, keppnissvæði og reiðhöll.

Þessi tillaga liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 18. nóvember 2024 til og með 6. janúar 2025.

Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 6. janúar 2025.

George Frumuselu
Skipulagsfulltrúi Mýrdalshrepps