Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða starfsmann í stoðþjónustu

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsmanni til að sinna stoðþjónustu í Vík. Starfið felst í aðstoða einstakling við daglegt líf og félagslegan stuðning.

Leitað er að einstaklingum sem búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, eru ábyrgir og traustir, sýna frumkvæði í starfi og geta unnið sjálfstætt og hafa gaman af að vinna með fólki. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Laun eru samkvæmt kjarasamningum FOSS og VLFS.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Petrína Fr. Sigurðardóttir, Ráðgjafi í MFF í síma 487-8125 eða á petrina@felagsmal.is.