Mýrdalshreppur auglýsir eftir jákvæðum og hugmyndaríkum starfsmanni í hlutastarf til að sjá um félagsmiðstöðina OZ í Mýrdalshreppi.
OZ bíður að jafnaði upp á félagsmiðstöð fyrir börn í 5.-7. og 8.-10. bekk yfir vetrartímann. Félagsmiðstöðin er með aðild að Samfés og sækir viðburði á þeirra vegum. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir ungmenni. Félagsmiðstöðin er til húsa í Leikskálum. Forstöðumaður er starfsmaður ungmennaráðs, undirbýr fundi ungmennaráðs Mýrdalshrepps í samstarfi við formann þess og situr að jafnaði fundi ungmennaráðs með málfrelsi og tillögurétt.
- Skipulagning og þátttaka í starfsemi félagsmiðstöðvarinnar OZ.
- Vinna með ungmennaráði Mýrdalshrepps.
- Önnur tilfallandi verkefni sem falla undir félagsstarf ungmenna.
- Sjá nánar í starfslýsingu d. 290720
Hæfniskröfur:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
- Frumkvæði og sjálfstæð í störfum.
- Færni í samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
Um er að ræða 30% starf
Vinnutími er að mestu leyti seinni part dags og á kvöldin.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri í síma 487-1210 á opnunartíma skrifstofu Mýrdalshrepps.
Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða með tölvupósti á netfangið
sveitarstjori@vik.is
Frestur til að skila inn umsókn er til 9. ágúst 2021
Starfið hefst 1. september 2021