Gjöf til landsmanna í tilefni 80 ára lýðveldisafmælis Íslands

Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17. júní 1944 og fagnar því 80 ára afmæli á árinu. Af því tilefni gefur forsætisráðuneytið í samvinnu við Forlagið út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, sem verður gjöf til landsmanna og dreift um allt land fyrir 17. júní.

Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu hennar og tilurð sem þjóðartákn og ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu í formlegri hátíðardagskrá á Austurvelli allt frá árinu 1947. Ásamt þessum greinum eru í bókinni birt úrval þjóðhátíðarljóða og þýðingar á ensku og pólsku á formála forsætisráðherra og samentektum greinargerða um fjallkonuna.

Í samvinnu við forlagið og sveitarfélögin er bókinni nú dreift um allt land, aðallega á bókasöfn og sundstaði, þar sem landsmenn geta nálgast bókina. 

Sveitarfélagið sendir hamingjuóskir í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní og 80 ára afmæli lýðveldisins.