Laus störf við Víkurskóla

Laus störf við Víkurskóla, Vík í Mýrdal skólaárið 2024-2025

Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:

- Staða þroskaþjálfa 100% starfshlutfall

- Staða grunnskólakennara, starfshlutfall 60-100%. Ýmsar kennslugreinar koma til greina á mið- og unglingastigi

Umsækjendur skulu hafa tilskylda menntun og reynslu til starfsins og góð tök á íslensku í ræðu og riti. Lögð er áhersla á að umsækjandi sé sveigjanlegur og hafi góða samskiptahæfni og vilja til að taka þátt í samstarfi og teymisvinnu.

Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.

Umsóknarfrestur til og með 20. maí. Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2024. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ og ÞÍ.

Umsóknir auk ferilskrár skulu sendar á netfangið vikurskoli@vikurskoli.is

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 /7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is