Upplýsingar um Kjörskrá 30. nóv. 2024

Frá Kjörstjórn Mýrdalshrepps

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram fara laugardaginn 30. nóvember 2024 liggur frammi á skrifstofu Mýrdalshrepps frá 9. nóvember 2024 og til kjördags.

Opnunartími skrifstofu er frá kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00 alla virka daga.

Vekjum athygli á upplýsingavefnum http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/forsetakosningar/

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.

Kjörfundur í Mýrdalshreppi, vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 30. nóvember 2024 verður í Víkurskóla.

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 19:00.

Kjósendur skulu hafa meðferðis og framvísa gildum persónuskilríkjum (ökuskírteini, nafnskírteini eða vegabréf).

Kjörstjórn Mýrdalshrepps