Hjúkrunarheimilið Hjallatún óskar eftir einstaklingi í stöðu aðstoðar matráðs frá 1. desember næstkomandi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu og unnið er aðra hvora helgi. Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt og reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands
Umsóknir sendist á hjallatun@vik.is
Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri