Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2023.
Breyting á aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2023 – Höfðabrekka og breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggð og landbúnaðaraland.
Gerðar eru breytingar á greinargerð aðalskipulags, á almennum skilmálum um landbúnaðarsvæði, íbúðarbyggð í dreifbýli og verslun og þjónustu í dreifbýli. Auk þess verður gerð breyting á uppdrætti og greinargerð í landi Höfðabrekku.
Skipulagstillagan liggur frammi hjá skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, á skipulagsgátt og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 20. janúar til og með 3. mars 2025.
Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík, í skipulagsgátt eða í tölvupósti á skipulag@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 3. mars 2025.
George Frumuselu
skipulagsfulltrúi Mýrdalshreppi