Íbúðir lausar til leigu í Vík / Rental apartments available in Vík

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum við Sléttuveg 3A í Vík. Um er að ræða íbúðir í nýbyggðu fjölbýlishúsi á tveimur hæðum og eru íbúðir sem nú eru lausar til leigu allar tveggja herbergja 74,6 m² að stærð.

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Umsókn um leigu

Fylla skal út umsóknareyðublað (umsóknareyðublað hér) og senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 2. ágúst 2024

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Umsóknareyðublað: Umsókn um íbúð