Hjúkrunar og dvalarheimilið Hjallatún í Vík, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing/deildarstjóra 2, í 90%-100% stöðu frá og með 1. janúar 2025. Gott húsnæði í boði á staðnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunarheimilis. Staðgengill hjúkrunarforstjóra eftir þörfum
- Fjölbreytt hjúkrun og skipulag hjúkrunarmeðferða, skipulagning vakta og verkstjórn. Fræðsla til starfsfólks.
- Eftirlit með gæðum hjúkrunar
- Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu þar sem fagmennska umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
- Ráðgjöf og fræðsla til þjónustuþega og aðstandenda
- Um er að ræða 90 %-100% stöðu deildarstjóra 2, sem vinnur dagvaktir, helgarvaktir og bakvaktir eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
- Starfsleyfi landlæknis
- Reynsla af stjórnun, kostur
- Reynsla af RAI mælitækinu kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
- Gott vald á íslenskri tungu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Samtaka sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
- Umsókn sendist á netfangið hjallatun@vik.is.
- Umsókninni þurfa að fylgja upplýsingar um menntun, starfsleyfi, sakavottorð og fyrri störf
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri á hjallatun@vik.is. S:487-1348.