Víkurskóli, Vík í Mýrdal, óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða einstakling með sambærilega menntun í 80-100% starf skólaárið 2024-2025.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Um Víkurskóla:
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf allra aðila skólasamfélagsins og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.vikurskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa hjá Víkurskóla þurfa að gefa heimild til upplýsingaröflunar úr sakaskrá. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélagi Íslands.
Aðstoð er veitt við að útvega húsnæði á svæðinu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225.