Consensa fyrir hönd Mýrdalshrepp óskar eftir tilboðum í byggingu nýs leikskóla samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Um er að ræða 698,1m² leikskóla með þremur deildum á einni hæð við Ránarbraut 17, 870 Vík.
Stærð lóðar er 3.890 m². Verklok eru 1. september 2023
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni:
https://tendsign.is/doc.aspx?UniqueId=afybeouyfj&GoTo=Tender
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en: kl. 12:00 þann 31. mars 2022.
Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.