Laust starf hjúkrunarfræðing/deildarstjóra við Hjallatún í Vík

Samkvæmt mannauðsstefnu Mýrdalshrepps ber að auglýsa allar fastráðningar hjá Mýrdalshreppi.

Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.

Hjúkrunar og dvalarheimilið Hjallatún í Vík, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing/deildarstjóra 2, í 90%-100% stöðu frá og með 1. janúar 2025. Gott húsnæði í boði á staðnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunarheimilis. Staðgengill hjúkrunarforstjóra eftir þörfum
  • Fjölbreytt hjúkrun og skipulag hjúkrunarmeðferða, skipulagning vakta og verkstjórn. Fræðsla til starfsfólks.
  • Eftirlit með gæðum hjúkrunar
  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu þar sem fagmennska umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
  • Ráðgjöf og fræðsla til þjónustuþega og aðstandenda
  • Um er að ræða 90 %-100% stöðu deildarstjóra 2, sem vinnur dagvaktir, helgarvaktir og bakvaktir eftir samkomulagi.

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
  • Starfsleyfi landlæknis
  • Reynsla af stjórnun, kostur
  • Reynsla af RAI mælitækinu kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
  • Gott vald á íslenskri tungu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Samtaka sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

  • Umsókn sendist á netfangið hjallatun@vik.is.
  • Umsókninni þurfa að fylgja upplýsingar um menntun, starfsleyfi, sakavottorð og fyrri störf

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Berglind Jóhannesdóttir hjúkrunarforstjóri á hjallatun@vik.is. S:487-1348.